9.4.2008 23:50:06 Íslensk unglingahljómsveit sigraði í einni stærstu lagasmíðakeppni heims Meðal dómara voru ekki ómerkari tónlistamenn en Tom Waits, Frank Black og Jerry Lee Lewis.
Fyrir tæpum tveimur árum fengum við hjá Tónaflóði/245.is skemmtilegt símtal. Við vorum beðin um að aðstoða unglingsdrengi í hljómsveit sem kallaði sig Soundspell við smá tæknivinnu í tengslum við lag sem þeir voru að vinna.
Strákarnir sem voru þá 15 og 16 ára, höfðu áhuga á að taka þátt í Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni og sendu umrætt lag inn í kynningarskyni, en það var það eina lagið sem þeir áttu upptöku af á þeim tíma. Ekki komust þeir þó að það árið, enda strákarnir ungir og ferilskráin stutt.
Soundspell árið 2005
En þeir létu ekki deigan síga, héldu áfram að stunda námið af kappi og sömdu fleiri lög og texta í frístundum. Ári síðar kom svo fyrsti geisladiskurinn þeira út "An ode to umbrella" sem fékk góða dóma.
Soundspell tók þátt í Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni 2007 og spilaði á NASA.
Soundspell 2007
Í nóvember s.l. rákust strákarnir svo á lesningu um Alþjóðlega lagasmíðakeppni, International Songwriting Contest, einni þeirri stærstu í heiminum. Þeir ákváðu að taka þátt, en meðal dómara voru tónlistarmennirnir Jerry Lee Lewis, Tom Waits, Robert Smith, forsprakki The Cure, og Frank Black, framvörður The Pixies.
Yfir 15 þúsund lög bárust í keppnina og í lok janúar var Soundspell tilkynnt að þeir væru komnir í undanúrslit í sínum aldursflokki með tvö lög af plötunni "An Ode to the Umbrella". Viku síðar voru þeir komnir í 13 laga úrslit með lagið sitt Pound og í kvöld var þeim tilkynnt að þeir væru sigurvegarar í flokki unglinga. Verðlaunin eru vegleg, meðal annars fimm vikna skólavist í sumar í Berklee tónlistarskólanum í Boston.
Stór hluti unglinganna sem voru í úrslitum eru undrabörn sem eru í fullu starfi sem tónlistarmenn. Sum þeirra hættu í skóla 11 ára og í kringum mörg þeirra eru rekin milljóna fyrirtæki.
Sá sem er trúlega allra frægastur er Matt Savage með lagið sitt Colors.
Svo er það raffiðluséníið, Antonio Pontarelli. Hann var einu sinni kosinn America’s Most Talented Kid og hefur spilað með Jethro Tull, San Diego sinfóniunni og Ray Charles.
Og saxófónleikarinn Grace Kelly var að spila á rauða dreglinum á Grammy hátíðinni síðast þegar til hennar fréttist.
Strákarnir í Soundspell hafa æft á elliheimili, í líkamsræktarstöð og bílskúr. Þeir eru allir í námi, Alexander Briem söngvari er á leiklistabraut í Kvikmyndaskóla Íslands, Áskell bassaleikar stundar nám í MH og FíH, Siggi píanóleikari er í Kvennaskólanum í Reykjavík, Jón Gunnar gítarleikari er í Verslunarskóla Íslands og Benni trommuleikari er í Fjöltækniskólanum.
Þó að strákarnir hafi fengið smá umfjöllun í fjölmiðlum síðustu tvö ár, hafa þeir ekki fengið verðskuldaða athygli. Það er frekar dapurt að unglingar landsins nái ekki athygli fjölmiðla nema þeir stundi veggjakrot eða berji mann og annan.